Spurt og svarað
Allt sem þú þarft að vita um að panta veislu frá mörgum veitendum í einni pöntun.
Fyrir viðskiptavini
Hvernig panta ég?+
Veldu afhendingardag og tímaglugga efst á veislusíðunni, settu vörur frá einum eða fleiri veitendum í körfuna og greiddu með korti eða Apple Pay. Engin innskráning, þú fyllir bara inn nafn, netfang, kennitölu, heimilisfang og síma.
Hvað kostar sendingin?+
Eitt sendingargjald á pöntun, hvernig sem karfan er samsett: 5.990 kr á Suðurnesjum og 3.990 kr á höfuðborgarsvæðinu. Svæðið ræðst af heimilisfanginu.
Hve langan fyrirvara þarf?+
Hver vara hefur eigin pöntunarfrest, oftast 1–3 dagar, og hann sést á vörunni („Panta fyrir 23.9. kl. 12“). Þegar dagur er valinn gráast vörur sem ekki er hægt að fá þann dag.
Hvernig fer greiðsla fram?+
Full greiðsla við pöntun á öruggri greiðslusíðu Teya, með korti eða Apple Pay. Reikningur með kennitölu er stofnaður sjálfkrafa og sendur á netfangið þitt, hentar fyrirtækjum.
Get ég afpantað?+
Já. Fram að 3 dögum fyrir afhendingu er afpöntun frí og endurgreitt 100 %. Innan 3 daga er endurgreitt 50 %, því veitendur eru þá byrjaðir að kaupa inn. Innan 24 klukkustunda er ekki hægt að afpanta. Sendu póst á hallo@smakkmatur.is með pöntunarnúmerinu. Endurgreitt er á kortið sem greitt var með.
Hvernig virkar afhendingin?+
SMAKK sækir hjá öllum veitendunum í pöntuninni og keyrir allt saman heim að dyrum innan tímagluggans sem þú valdir. Daginn fyrir afhendingu fáir þú áminningu, og þegar bíllinn leggur af stað fáir þú póst. Bílstjórinn hringir ef þarf.
Hvað með ofnæmi og mataræði?+
Hver vara sýnir alla skráða ofnæmis- og óþolsvalda (14 skv. reglugerð) og mataræðismerki eins og vegan eða glútenlaust. Skrifaðu líka athugasemd í körfuna ef eitthvað þarf að vita.
Kemur maturinn heitur?+
Flestir veislubakkar eru kaldir og tilbúnir á borðið. Heitir réttir eru merktir í lýsingu og koma í hitaöskjum með leiðbeiningum um hvernig best er að bera fram.
Fyrir veitendur
Hvernig kemst veitingastaður eða veisluþjónusta inn?+
Sendu póst á hallo@smakkmatur.is með nafni, stað og hvers konar mat þú býður. Við hringjum, förum yfir sækistað og umbúðir, og opnum svo aðgang að veitendasvæðinu þar sem þú setur vörurnar inn sjálf/ur.
Hvað fæ ég greitt?+
Þú skráir sjálf/ur verðið sem viðskiptavinur borgar og SMAKK fær umboðshlutfall af sölunni, við förum yfir það í samtali. SMAKK sér um sölu, greiðslu, sækir og keyrir. Mánaðarskýrsla í veitendasvæðinu sýnir hvað þú sendir SMAKK reikning fyrir, eindagi 10. næsta mánaðar.
Hvernig sé ég pantanir?+
Þú færð póst um hverja nýja pöntun með eldunarfresti, og veitendasvæðið sýnir komandi pantanir. Þú getur lokað stökum dögum og gert vörur óvirkar hvenær sem er.