Veitingastaðirnir
mættir á vinnustaðinn

Sprellferskur matur frá völdum veitingastöðum — í hádeginu, á kvöldin og um helgar, beint upp að dyrum. Starfsfólkið velur sinn uppáhaldsrétt og við græjum restina.

Taka vinnustaðinn í SMAKKEngin binding · Engin lágmarkspöntun
Ferskur matur frá veitingastöðum á Suðurnesjum
4 hádegisréttir og 2 kvöldréttir alla daga vikunnar
Réttur úr SMAKK matseðlinum

Ertu til í SMAKK?

Kíktu í hóp þeirra vinnustaða sem fá ferskan mat sendan í hádeginu, á kvöldin og um helgar.

  • Nýr og ferskur matseðill í hverri viku
  • Handvaldir veitingastaðir á Suðurnesjum
  • 4 hádegisréttir og 2 kvöldréttir í boði á hverjum degi — líka um helgar
  • Hver og einn starfsmaður velur fyrir sig í appinu
  • Algjörlega laust við bindingu og lágmarkspantanir
Skrá vinnustaðinn

Einfalt í framkvæmd

Svona virkar SMAKK

1

Nýr matseðill vikulega

Á fimmtudögum kl. 10:15 dettur matseðill næstu viku í loftið. Þið hafið frest til loka vinnudags á föstudegi til að velja ykkar uppáhalds.

2

Hver velur sinn mat

Starfsfólkið velur nákvæmlega þá daga og rétti sem heilla. Plönin breyst? Það er minnsta mál að afpanta fyrir kl. 16:00 daginn áður.

3

Við keyrum á vinnustaðinn

Við mætum með matinn rjúkandi ferskan á vinnustaðinn á réttum tíma — beint úr eldhúsunum í Keflavík og beint á borðið til ykkar.

Veitingastaðir í samstarfi

Við handveljum samstarfsaðila okkar á Suðurnesjum. Úrvalið stækkar jafnt og þétt með okkur.

Réttur frá Asahi Sushi & Wok
Asahi Sushi & Wok merki

Asahi Sushi & Wok

Fresh Sushi & Asian Wok dishes made daily.

Réttur frá Beint úr sjó
Beint úr sjó merki

Beint úr sjó

Brakandi ferskur fiskur beint af Suðurnesjum á hverjum degi.

Réttur frá Biryani Kebab
Biryani Kebab merki

Biryani Kebab

Réttur frá Buongiorno
Buongiorno merki

Buongiorno

Réttur frá Fjárhúsið
Fjárhúsið merki

Fjárhúsið

Réttur frá Just wing it
Just wing it merki

Just wing it

Réttur frá Kim Yong wings
Kim Yong wings merki

Kim Yong wings

Réttur frá LiBRARY
LiBRARY merki

LiBRARY

Réttur frá Njótum
Njótum merki

Njótum

Ómótstæðilegur íslenskur heimilismatur sem bragðast eins og hjá ömmu.

Réttur frá Piccola
Piccola merki

Piccola

Réttur frá Preppbarinn
Preppbarinn merki

Preppbarinn

Auðveld leið til að borðar hollt!

Réttur frá Public Deli
Public Deli merki

Public Deli

Réttur frá Reykjavik Asian
Reykjavik Asian merki

Reykjavik Asian

Líflegir asískir fusion-réttir sem kveikja á bragðlaukunum.

Réttur frá Thai Keflavík
Thai Keflavík merki

Thai Keflavík

Ekta og bragðmikill taílenskur matur í hjarta Keflavíkur.

Einföld verðskrá

Eitt verð á alla rétti — hádegi, kvöld og helgar. Engin flækjustig, engar leiðir.

Allt innifalið
2.990 krá hvern rétt

Allt innifalið — sama verð fyrir alla

Hver og einn á vinnustaðnum velur sinn rétt af matseðli vikunnar. Ferskt frá völdum veitingastöðum á Suðurnesjum, sent beint á vinnustaðinn.

  • 4 hádegisréttir og 2 kvöldréttir í boði alla daga vikunnar
  • Hver og einn velur sinn rétt
  • Sama verð fyrir hádegi, kvöld og helgar
  • Mataræðis-síur: vegan, glútenlaust, lágkolvetna
  • Alltaf a.m.k. einn vegan réttur á dag
  • Ofnæmisvaldar merktir á hverjum rétti
Skrá okkur!Enginn binditími · Verð með VSK

50+ starfsmenn? Við gerum stærri vinnustöðum tilboð með magnverði og sérsniðinni útfærslu. Fá tilboð

Beint upp að dyrum

Við keyrum út á vinnustaði um öll Suðurnesin. Skemmtilegur bónus: Fyrirtæki í sama húsnæði skipta sendingarkostnaðinum á milli sín.

23+ pantanir á dag0 kr
13–22 pantanir á dag2.600 kr
1–12 pantanir á dagHafðu samband
SMAKK sendingar á Suðurnesjum

Fá SMAKK á vinnustaðinn?

Sendu okkur línu og við heyrum í þér á punktinum. Við komum líka glaðbeitt á staðinn og kynnum matseðilinn fyrir hópnum ef þið viljið.

Tölvupóstur

hallo@smakkmatur.is

Kennitala og heimilisfang eru valfrjáls, en með þeim getum við sett vinnustaðinn upp strax.

Algengar spurningar

Það er engin lágmarkspöntun :)

Matseðillinn mætir í loftið á fimmtudögum kl. 10:15. Pantanir þurfa svo að vera klárar fyrir lok vinnudags á föstudegi fyrir vikuna á eftir.

Já, heldur betur! Við græjum bæði hádegis- og kvöldmat alla daga vikunnar, líka um helgar. Verðið er alltaf það sama, 2.990 kr á rétt, og sendingargjaldið helst óbreytt.

Já! Þú getur afpantað til klukkan 16:00 daginn áður.