Fyrir veitingastaði

Eldhúsið ykkar.
Aukin sala.

SMAKK tengir vandaða veitingastaði á Suðurnesjum við vinnustaði sem panta hádegismat vikulega. Þið einbeitið ykkur að því sem þið gerið best — að elda. Við sjáum um allt hitt.

Fjölbreyttir réttir frá veitingastöðum SMAKK
01

Ný sölurás

Hundruð starfsmanna á Suðurnesjum panta hádegismat í hverri viku — án þess að þið þurfið að markaðssetja neitt.

02

Engin áhætta

Ekkert mánaðargjald, enginn uppsetningarkostnaður. Þið fáið greitt fyrir hvern seldan rétt.

03

Við sjáum um allt

Sending, hitakassar, tæknikerfi, viðskiptavinaþjónusta og innheimta — allt innifalið.

Ferlið

Fimm skref, engin flækja

1

Þið fáið aðgang að ykkar eigin portali

Setjið inn 1–15 rétti með lýsingum og mataræðismerkingum, hlaðið upp logo og einni mynd. Allt á einum stað.

2

Réttirnir fara í matseðils-rótator

Ykkar réttir birtast á vikulegum SMAKK-matseðli. Þið sjáið alltaf í ykkar kerfi hvaða réttir voru valdir og hvenær.

3

Matseðill fer í loftið fimmtudaga kl. 10

Starfsmenn panta til miðnættis á föstudegi. Hægt er að afpanta degi áður fyrir komandi viku.

4

Þið eldið eftir pöntun

Heildarpöntun berst í kerfið — allt frá 10 upp í 150 rétti. Sjálfvirkar áminningar um eldunartíma fylgja.

5

Við sækjum og keyrum

Bílstjórar SMAKK sækja matinn í hitakössum sem við sköffum ykkur, og keyra beint á vinnustaðina.

Uppgjörið

Einfalt og gagnsætt

Samið um hvern rétt
innkaupsverð eftir samkomulagi

Betra verð þýðir að rétturinn ykkar er oftar á matseðlinum — og selst meira.

  • —Mánaðarskýrsla berst frá SMAKK um hver mánaðamót
  • —Þið sendið okkur reikning samkvæmt henni
  • —Eindagi 10. hvers mánaðar fyrir liðinn mánuð
  • —Rauntímayfirlit yfir allar pantanir í ykkar kerfi
Þjónusta

Það sem fylgir

Hitakassar

SMAKK sköffum alla hitakassa sem þarf — ykkur að kostnaðarlausu.

Eigið kerfi

Pantanir, tölur og mánaðarskýrslur í rauntíma.

Sjálfvirkar tilkynningar

Póstur við nýja pöntun, eldunartíma og komu bílstjóra.

Kynning á staðnum

Við komum og setjum ykkur upp á 30 mínútum.

Bílstjóri SMAKK hleður hitakössum í sendibíl
Merkingar

Svona merkjum við hvern kassa

Á hvern kassa límist miði með móttakanda, svæði, veitingastað og skammtafjölda:

SMAKK
VinnustaðurVerne Global
Skammtar12
SvæðiReykjanesbær
Kassi2 / 3
VeitingastaðurThai Keflavík
Sendingarsvæði

Reykjanesbær · Sandgerði · Garður · Vogar · Grindavík

Eigum við að taka spjall?

Tuttugu mínútur — við komum til ykkar og kynnum samstarfið.